Quantcast
Channel: Greinar – miðjan.is
Viewing all articles
Browse latest Browse all 6190

SEÐLABANKINN HÆKKAR VEXTI!

$
0
0
Björgvin Guðmundsson.

Björgvin Guðmundsson skrfar: Már Guðmundsson seðlabankastjóri tilkynnti í morgun, að Seðlabankinn hefði ákveðið að hækka vexti um o,25% og að stýrivextir verði því 4,5%.

Þeir eru hvergi í nágrannalöndum okkar svo háir. Efnahagslífið er að hægja á sér; niðursveiflan er byrjuð. Við slíkar aðstæður á ekki að hækka vexti,heldur að lækka þá.

En hvers vegna hækka þeir? Það var búið að hóta vaxtahækkun, ef verkalýðshreyfingin héldi kröfum sínum um kauphækkun til streitu. Er Seðlabankinn kominn í lið með atvinnurekendum ásamt ríkisstjórninni að reyna að hræða verkafólk. Forsætisráðherra líkar það áreiðanlega vel. Þessi vaxtahækkun auðveldar ekki að koma húsnæðisátaki í framkvæmd eins og ASÍ vill nú. Hún torveldar það.

Þessi frétt SEÐLABANKINN HÆKKAR VEXTI! birtist fyrst á miðjan.is.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 6190