Quantcast
Channel: Greinar – miðjan.is
Viewing all articles
Browse latest Browse all 6236

Þögnin og Heiðveig

$
0
0
Össur Skarphéðinsson.

Össur Skarphéðinsson skrifar: Hvar er verkalýðshreyfingin þegar kemur að hennar eigin málum? Hvar er hinn nýkjörni forseti ASÍ?

Er það virkilega þannig að ekkert verkalýðsfélag ætlar að andmæla því að þegar kona í uppreisn býður sig fram til formanns í Sjómannafélaginu þá er hún rekin úr félaginu? Ekki þekki ég neitt til málanna en af fréttum að dæma hefur hin brottrekna kona ærin málefnaleg rök til andspyrnu. Í venjulegu samfélagi gera menn út um það með lýðræðislegum hætti. Í kosningu. Ekki með aftöku. Þögn verkalýðshreyfingarinnar – þögn ASÍ – er öllum til skammar. Aldrei ældi ég á sjónum en mér verður óglatt yfir þessu.

Með vinsemd og virðingu, Össur Skarphéðinsson, fyrrv. sjómaður á Guðbjörgu Ís, Kofra Ís, Heimi SU, Jökli ÞH – með meiru. Skrifin birtust á Facebooksíðu Össurar.

Þessi frétt Þögnin og Heiðveig birtist fyrst á miðjan.is.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 6236