Quantcast
Channel: Greinar – miðjan.is
Viewing all articles
Browse latest Browse all 6196

Styrmir og síminnkandi Sjálfstæðisflokkur

$
0
0

Styrmir Gunnarsson, fyrrverandi ritstjóri Moggans, sér hætturnar sem Sjálfstæðisflokkurinn stendur frammi fyrir.

„Að loknum landsfundi Sjálfstæðisflokksins nú um helgina er tvennt ljóst:

Sjálfstæðisflokkurinn telur sig ekki eiga neitt ósagt við íslenzku þjóðina um ástæður hrunsins – nú þegar 10 ár verða liðin í haust frá þeim ósköpum.

Sjálfstæðisflokkurinn telur enga ástæðu til að ræða í eigin ranni þá staðreynd að flokkurinn hefur tapað a.m.k. 10 prósentustigum af fylgi sínu ef ekki meiru.

Þetta er bersýnilega meðvituð ákvörðun forystusveitar nýrrar kynslóðar í flokknum. Um hana má segja að hver er sinnar gæfusmiður.

Afleiðingarnar blasa hins vegar við.

Verulega minnkandi áhrif flokksins á framvindu landsmála.“

Þetta er að finna á styrmir.is.

Þessi frétt Styrmir og síminnkandi Sjálfstæðisflokkur birtist fyrst á miðjan.is.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 6196