


Tómas Guðbartsson skrifar:
Hjúkrunarfræðingar eru tvímælalaust hetjurnar í Covid-19 faraldrinum - enda í langmestri snertingu við sjúklingana. Þá er ég ekki að gera lítið úr hlutverki félaga minna; gjörgæslu og smitsjúkdómalækna eða lungna-, bráðamóttöku- og heimilislækna - sem allir skipa framvarðarsveitina.
En aftur að hjúkrunarfræðingunum - hetjunum sem enn eru samningslausar eftir árs samningaviðræður. Til að bæta gráu ofan á svart voru laun þeirra skert rétt áður en Covid-faraldurinn skall á - og það til að ná auknum sparnaði á LSH. Þetta gerist á vakt VG sem reifir sögðust ætla að styðja við kvennastéttir í þessari ríkisstjórn. Það er eitthvað mikið rangt við þetta allt saman - ekki síst núna þegar þessi hámenntaða stétt - sem bókstaflega hættir lífi sinu til að bjarga öðrum - skuli endurtekið fá svona kaldar tuskur í andlitið.
Erlendis er verið að borga sömu hjúkrunarfræðingum ríflega bónusa - enda verður þessi faraldur ekki unninn án þeirra.
Koma svo - og ekki segja mér að ómögulegt sé að semja vegna launaskriðs á almennum vinnumarkaði. Það er gömul lumma. Alli sjá núna - og hefðu betur séð fyrr - hversu mikilvægt hlutverk þeirra er. Samfélög fungera ekki án heilbrigðiskerfis og þar eru hjúkrunarfræðingar risastórt tannhjól.
Skrifin birtust fyrst á Facebooksíðu Tómasar.