
Gunnar Smári skrifar:

Grasrót Sjálfstæðisflokksins stendur
upp í hárinu á forystunni vegna 3ja orkupakka Evrópusambandsins, prinsippmáls
en varla grundvallarmáls. Gott hjá grasrót Sjálfstæðisflokksins, hún er
sprelllifandi þótt gömul sé orðin, grá og örugglega stirð og minnissljó; en hún
berst eins og ljón.
En hvað með grasrót VG? Er hún dauð?
Eða lætur hún sem hún sé dauð (það gera rollur stundum þegar refurinn nálgast,
skella sér á bakið og setja fæturna upp í loft; þykjast vera dauðar)? Endurkoma
Bandaríkjahers, virkjun Hvalár, sala bankanna, uppkaup erlenda auðkýfinga á
íslenskum bújörðum ... halló, er einhver heima? Halló!
Þessi frétt Hvað með grasrót VG? Er hún dauð? birtist fyrst á miðjan.is.