
obi.is: Alþingi samþykkti eins og kunnugt er, frumvarp félags og barnamálaráðherra um lækkun skerðinga bóta vegna annara tekna lífeyrisþega. Breytingin var afturvirk, og gildir frá 1. janúar 2019. Tryggingastofnun hefur nú tilkynnt að í síðustu viku ágústmánaðar, munu þeir sem rétt eiga á hækkun greiðslna vegna fyrstu átta mánaða ársins, fá þær greiðslur.
Tekjuviðmið
breytast þannig að 65% af skattskyldum tekjum örorku- og endurhæfingarlífeyrisþega
hafa nú áhrif á útreikninginn í stað 100% áður. Aldurstengd örorkuuppbót hefur
nú 50% vægi í stað 100% áður. Bætur samkvæmt lögum um almannatryggingar og
lögum um félagslega aðstoð, aðrar en aldurstengd örorkuuppbót, hafa áfram 100%
vægi.
Öryrkjabandalag
Íslands lítur á þessa lagabreytingu sem hænuskref í þá átt að afnema að fullu
þá skerðingu sem króna á móti krónu, nú 65 aurar á móti krónu er, og veltir
áfram fyrir sér hvers vegna svo erfiðlega gangi að fá ríkisstjórn til að afnema
að fullu þessa skerðingu. Aðeins þannig er fötluðu fólki opnuð leið inn á
vinnumarkaðinn án þess að þurfa að kaupa sig inn á hann.
Skerðing er áfram
til staðar, bara aðeins minni. ÖBÍ brýnir stjórnvöld til að stíga skrefið til
fulls og afnema skerðinguna að fullu.
Þessi frétt Tryggingastofnun leiðréttir í lok ágúst birtist fyrst á miðjan.is.