Quantcast
Channel: Greinar – miðjan.is
Viewing all articles
Browse latest Browse all 6196

Hvernig væri að hætta þessari vitleysu?

$
0
0

Gunnar Smári skrifar:

Þarna viðurkennir verktaki að
markaðurinn svokallaði hafi gert mistök, framleitt íbúðir sem enginn vildi á
tíma þar sem mikil þörf var fyrir húsnæði til að lina húsnæðiskreppuna. Hann
segir síðan að nú muni verktakar sleikja sárin í tvö ár og byrja svo aftur að
byggja.

Fólkið sem húsnæðiskreppan hefur
nagað og bitið frá 2011 á þá að bíða til 2021 liggjandi á bæn að hin alheimsku
markaðsfyrirtæki fari þá kannski að byggja yfir fólk. Hvernig væri að hætta
þessari vitleysu; er ekki kominn tími til að sveitarfélögin byggi sjálf íbúðir
yfir fólk og fjölskyldur?

Þessi frétt Hvernig væri að hætta þessari vitleysu? birtist fyrst á miðjan.is.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 6196