Quantcast
Channel: Greinar – miðjan.is
Viewing all articles
Browse latest Browse all 6196

Um hvað er þingkonan að tala?

$
0
0

Gunnar Smári skrifar:

Um hvað er þingkonan að tala? Það
er bara alls ekki svo að íslensk stjórnvöld, vanalega leidd af
Sjálfstæðisflokknum, gangi harðar að skattgreiðendum en stjórnvöld í okkar
heimshluta; það er betur settum skattgreiðendum.

Fjármagns- og fyrirtækjaeigendur
búa við óvenju lága skatta á Íslandi; hér eru fjármagnstekjuskattar lægri en í
öllum nágrannalöndum, hér er tekjuskattur fyrirtækja lægri en annars staðar,
hér er erfðafjárskattur lægri en annars staðar, hér hafa eigna- og auðlegðarskattar verið aflagðir og hér er skatteftirlit með hinum ríkustu
ákaflega veikt, þótt vitað sé að auðugasta fólkið svíki að meðaltali um þriðju
hverja krónu undan skatti.

Til
að fjármagna þessa skattaparadís hinna ríku hafa stjórnvöld, vanalega undir
forystu Sjálfstæðisflokksins, hækkað skatta á launafólk, mest á þau sem hafa
lág laun eða lægri meðallaun. Auk þess sem almenningur er rukkaður um komugjöld
og aðrar greiðslur fyrir opinbera þjónustu og innviðir eru látnir grotna niður
til að réttlæta sölu á ríkiseigum.

Það
sérstæða við íslenska skattapólitík er að hér eru skattar á hin efnameiri
áberandi lágir á meðan tekjuskattar, neysluskattar og gjaldtaka í grunnkerfunum
(stefnt er að því að innleiða það inn í vegakerfið) er óvenjuhá. Þegar þingfólk
Sjálfstæðisflokksins fer að tala um skattalækkanir eru þau aldrei, aldrei
nokkurn tímann, að tala um lækkun skatta á almenning heldur ætíð og ávalt að
tala um að lækka enn frekar skatta á fjármagns- og fyrirtækjaeigendur og annað
efnafólk.

Þessi frétt Um hvað er þingkonan að tala? birtist fyrst á miðjan.is.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 6196