Quantcast
Channel: Greinar – miðjan.is
Viewing all articles
Browse latest Browse all 6190

BJARNI ER REPÚBLIKANI

$
0
0

Hin ríku þurfa atkvæði til að geta haldið áfram gagnbyltingu sinni.

Gunnar Smári.

Gunnar Smári skrifar:

Í tilefni af andstöðu helmings þingflokks Sjálfstæðisflokksins gegn lögum um þungunarrof rifjaðist upp fyrir mér greining heilags Noam Chomsky á Repúblikanaflokknum á sjöunda áratugnum, þegar hægri menn í Bandaríkjunum voru að undirbúa gagnbyltingu hinna ríku gegn velferðar- og mannúðarsamfélagi eftirstríðsáranna. Ég tek fram að auðvitað voru eftirstríðsárasamfélögin ekki fullkomin velferðar- og mannúðarsamfélög, en það var á yfirborðinu samkomulag um það innan þeirra að markmið stjórnmálanna væri að auka velferð allra og styrkja mannúð, opna leið fyrir kúgaða hópa til þátttöku og tryggja öllum möguleika á góðu lífi. En hvað um það; gagnbylting hinna ríku, sem síðar fékk nafnið nýfrjálshyggja, snerist um að brjóta þetta samkomulag niður og fá kjósendur til að fallast á að samfélaginu yrði ekki stýrt út frá hagsmunum almennings heldur aðeins út frá hagsmunum hinna ríku. Sem voru aðeins 1% fjöldans, 10% ef tekin voru með þjónustustéttir sem högnuðust af auknum umsvifum hinna ríku (lögfræðingar, endurskoðendur, verðbréfamiðlarar, bankafólk o.s.frv.). Þetta var vandi hinna ríku í Bandaríkjunum á sjöunda áratugnum; hvernig fáum við fólk til að kjósa gegn hagsmunum sínum?

Bjarni Benediktsson skilur vel þessa stöðu Repúblikana; hann er fyrst og síðast pólitískur armur hinna ríku, gagnbyltingarmaður sem vill frið til að skrúfa ofan af árangri almennasamtaka á síðustu öld. Ljósm.: xd.is

Richard Nixon hafði notað svokallaða Suðurríkjaaðferð
í forsetakosningunum 1968 og 1972; höfðað til kynnþáttaandúðar hvítra íbúa og
ótta þeirra gagnvart réttarbótum afríkanskra ameríkana á sjötta áratugnum. Eins
og Donald Trump ól Nixon á ótta þessa fólks, talaði undir rós til rasistana á
meðan Trump kann það ekki; lýsir hreint og klárt yfir stuðningi við Klu Klux
Klan og aðra hvítra kynþáttahatara. En þrátt fyrir að Jimmy Carter væri veikur
forseti mátu Repúblikanar það svo ekki að stuðningur kynþáttahatara í Suðrinu
og andstaða við jafnaðaraðgerðir stjórnvalda á sjötta áratugnum dygðu ekki til.
Þeir ákváðu því að taka upp andstöðu við fóstureyðingar í von um að sópa til
sín atkvæðum kaþólikka í Norðurríkjunum og heittrúarkirkna mótmælenda í
Suðurríkjunum. Fram að því hafði það verið klár afstaða hægrimanna innan
Repúblikanaflokksins að fóstureyðingar væru ekki málefni ríkisvaldsins heldur
persónulegt mál á ábyrgð einstaklingsins. Ronald Reagan viðhélt hundablístrum
Nixon sem beint var að kynþáttahyggjufólki, en bætti við harðri afstöðu trúaðra
gegn frelsi í einkamálum; gegn fóstureyðingum og réttindum samkynhneigðra en
fylgjandi byssueign, bænalestri í skólum og annarri skoðanakúgun fjöldans
gagnvart einstaklingnum. Ronald Reagan fór í kosningabaráttuna 1980 undir
slagorðinu: Let's make America great again. Það merkir að „við“ í merkingunni
hvítir, karlar, kristnir, gagnkynhneigðir og ekki-fátækir ætlum að taka aftr
völdin; þröngva öðrum hópum til að lifa í „okkar“ samfélagi.

Andstaða við fóstureyðingar tengjast á engan hátt
inntaki gagnbyltingar hinna ríku. Hin ríku hafa alltaf nýtt sér fóstureyðingar,
hafa aldrei þurft að spyrja neinn eða neita sér um það; hafa getað keypt sér
fóstureyðingar á öllum tímum. Hin ríku hafa heldur engan hag af almennri
byssueign eða banni við hjónaband samkynhneigða; svona siðferðisleg málefni
tengjast á engan hátt gagnbyltingu þeirra sem snerist fyrst og fremst um að
færa völd, fé og eignir frá almenningi til hinna ríku. En þar sem gagnbyltingin
snerist um hagsmuni aðeins 1% kjósenda var nauðsynlegt að afla atkvæða út á
eitthvað allt annað en stefnuna og ráðagerðir um gagnbyltinguna. Frá sjöunda áratugnum
hafa Repúblikanar í Bandaríkjunum því reynt að sinna tveimur kjördæmum; í
kosningum höfða þeir til íhaldssemi í einkamálum og láta eins og stjórnmálin
snúist fyrst og síðast um þau mál. Milli kosninga snúa Repúblikanar sér að hinu
raunverulega kjördæmi sínu, hinum ríku; og færa þeim skattalækkanir, veikari
eftirlitsstofnanir, fleiri almannaeignir.

Bjarni Benediktsson skilur vel þessa stöðu
Repúblikana; hann er fyrst og síðast pólitískur armur hinna ríku,
gagnbyltingarmaður sem vill frið til að skrúfa ofan af árangri almennasamtaka á
síðustu öld. Og þar sem hann er ríkur veit hann vel að hagsmunir hans fara
aldrei saman við hagsmuni fjöldans. Hann veit að ráðagerðir hans og félaga hans
og ættmenna eru óssamræmanlegar við vilja almennings. Bjarni veit því að hann
verður að geta aflað atkvæða út á eitthvað annað en ráðagerðir hans; ef fólk
sæi hvað hann ætlar sér myndi það hafna honum; hann fengi aldrei meira en 1%
fylgi. Þess vegna þykist hann vera á móti lögum um þungunarrof, líklega er
honum eins og forystu Repúblikana í Bandaríkjunum hjartanlega sama um svona
lög. Þau ná ekki yfir hin ríku. Þau hafa alltaf getað keypt sér fóstureyðingar;
hvar sem er, hvenær sem er.

Og Bjarna er sama þótt helmingur þingflokks
Sjálfstæðisflokksins hafi greitt lögunum atkvæði. Hann veit að á Íslandi eru
kaþólikkar á Norðurlandi ekki pólitískt afl þótt heittrúaðir mótmælendur á
Suðurlandi séu það að vissu leyti, einkum Fíladelfíufólk í Vestmannaeyjum. Það
hentar því hinum ríku vel að flokkur þeirra sé klofinn í málinu; ef þú ert á
móti fóstureyðingum geturðu kosið xD, ef þú ert fylgjandi þungunarrofi geturðu
kosið xD. xD hefur hins vegar enga skoðun á öðru en því að nauðsynlegt sé að
halda áfram með gagnbyltingu hinna ríku; lækka skatta þeirra, draga úr
skatteftirliti, halda áfram með einkavæðingu almannaeigna, færa hinum ríku
auðlindir almennings o.s.frv.

Þessi frétt BJARNI ER REPÚBLIKANI birtist fyrst á miðjan.is.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 6190