Quantcast
Channel: Greinar – miðjan.is
Viewing all articles
Browse latest Browse all 6229

KANNSKI GREIÐIR ALCOA TEKJUSKATT Á NÆSTUNNI

$
0
0

Fengi ég einhverju að ráða, myndi ég krefja Alcoa um greiðslu tekjuskatts frá upphafi starfseminnar.

Árni Gunnarsson skrifar:

Frétt á forsíðu Morgunblaðsins í morgun vakti athygli mína. Í fyrirsögn segir: „Skuldléttara Alcoa. Gæti flýtt fyrir greiðslu tekjuskatts.“ Í fréttinni segir, að fjármögnun Alcoa hafi verið breytt með þeim hætti, að móðurfélagið hafi aukið eigið fé um jafnvirði 143 milljarða íslenskra króna. Sú fjárhæð hafi verið notuð til að greiða niður skuld Alcoa á Íslandi við móðurfélagið. Forstjóri félagsins, Magnús Ásmundsson segir, að þessi breyting geti leitt til þess, að Alcoa byrji fyrr en ella að greiða tekjuskatt til íslenska ríkisins.

Félagið hefur aldrei greitt hér tekjuskatt,
enda bókfærð skuld við móðurfélagið notuð til að losna við skattgreiðslur.
Þetta er algeng aðferð stórfyrirtækja til að losna við skatta. - Er það ekki
hreint dásamlegt, að erlent félag, sem hefur komist undan skattgreiðslum hér á
landi með bókhaldsbrellum, skuli einhverntíman í náinni framtíð ætla að greiða
tekjuskatta. Þetta félag hefur, auk skattfríðinda, fengið rafmagn á
útsöluverði. Fengi ég einhverju að ráða, myndi ég krefja Alcoa um greiðslu tekjuskatts
frá upphafi starfseminnar. Það hefur verið vitað, að félagið hefur með
bókhaldsbrellum, þ.e. að bóka milljarðaskuldir við móðurfélagið, gabbað
íslensku þjóðina og haft af henni stórar fjárhæðir. Nú þykist forstjórinn gera
vel með að tilkynna, að verið geti að félagið greiði tekjuskatta einhverntíman
í framtíðinni.

Hann nefnir hins vegar engar aðgerðir til að
draga úr mengun frá Alcoa-stóriðjunni.

Þessi frétt KANNSKI GREIÐIR ALCOA TEKJUSKATT Á NÆSTUNNI birtist fyrst á miðjan.is.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 6229