Quantcast
Viewing all articles
Browse latest Browse all 6240

Að ganga of langt

Image may be NSFW.
Clik here to view.

Image may be NSFW.
Clik here to view.
Image may be NSFW.
Clik here to view.
Svo er að sjá að Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur sjávarútvegsráðherra, í Viðreisn, þyki nóg um framkomu stjórnenda HB Granda. Henni þykir þeir hafa gengið of langt og talar um að framganga þeirra kalli á endurskoðun laga um sjávarútveg og eins um gjaldheimtu vegna auðlindarinnar.

Þorgerður Katrín vísar málinu til ráðherranefndar. Þar sem Viðreisn er ekki ein í ríkisstjórn er trúlegt að Þorgerður Katrín eigi eftir að reka sig á veggi. Hennar gamli flokkur, Sjáflstæðisflokkurinn, stöðvaði sjávarútvegsráðherra Framsóknar á síðasta kjörtímabili, þegar honum var nóg boðið vegna Vísismálsins, þegar það fyrirtæki lokaði vinnslum sínum á Þingeyri, Húsavík og Djúpavogi.

Hvort Þorgerði Katrínu gengur betur að finna bresti í vörn Sjálfstæðisflokksins, hvað þetta varðar, kemur í ljós.

Of snemmt er að gera ráð fyrir að svo verði.

Sigurjón M. Egilsson.

Þessi frétt Að ganga of langt birtist fyrst á miðjan.is.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 6240