
Össur Skarphéðinsson skrifaði og birti á Facbook:

"Ég hef þó nokkrar mætur á Þorsteini Víglundssyni og oft mælist honum snoturlega. Hugsanlega skortir hann þó jarðsamband. Eina athugasemd þessa góða talsmanns Viðreisnar í efnahagsmálum var að samningarnir vektu spurningar "um sjálfstæði Seðlabankans.” Ég get trúað varaformanni Viðreisnar fyrir því að 95 % þjóðarinnar er fjandans sama um “sjálfstæði Seðlabankans.” Og helmingur hennar er til í að standa upp og klappa þegar sagt er að Seðlabankinn eigi að lækka vexti.
Í samhengi hlutanna er líka fráleitt að þessi partur kjarasamninganna hafi vegið að „sjálfstæðinu“ hjá félaga Má og bankanum. Þeir sem lesa ræðu Más á aðalfundi bankans í síðustu viku sjá að þar lofar aðalbankastjórinn nánast vaxtalækkunum - í fleirtölu - verði kjarasamningar á skaplegum nótum. Það er betra að þingmenn fylgist með ef þeir ætla að gera sig breiða. Líka hinn annars ágæti varaformaður Viðreisnar."
Þessi frétt Fólki er fjandans sama um sjálfstæði Seðlabankans birtist fyrst á miðjan.is.