

Þrýstingur á þá er mikill og áróðurinn gegndarlaus.
Björgvin Guðmundsson skrifar:
Drífa forseti ASÍ sagði í kastljósþætti í gær, að hún
tryði ekki neinum dómsdagsspám hér um að allt væri að fara í hund og kött vegna
vandræða Wow air og hugsanlegs samdráttar í ferðaiðnaðinum. Hagkerfið mundi
hugsanlega kólna eitthvað en það væri í lagi.
Ég tek undir með forseta ASÍ. Það
er rekinn skefjalaus áróður af hálfu atvinnurekenda, hægri manna og
ríkisstjórnarinnar (og RÚV) um að kröfur verkafólks um mannsæmandi laun geti leitt til verðbólgu, þegar niðursveifla í
hagkerfinu sé byrjuð!
Allur
þessi áróður hefur það markmið eitt að koma í veg fyrir, að lægstu laun
verkafólks hækki. Þetta er gamli söngurinn: Launahækkun verkafólks setur
efnahagslífið úr skorðum (en ofurhækkanir yfirstéttarinnar eru skaðlausar!).
Því
miður óttast ég að þessi skefjalausi áróður sé farinn að hafa áhrif á nýju
vertkalýðsleiðtogana. Þrýstingur á þá er mikill og áróðurinn gegndarlaus.
Þessi frétt Setur kauphækkun launafólks efnahagslífið úr skorðum? birtist fyrst á miðjan.is.