Quantcast
Channel: Greinar – miðjan.is
Viewing all articles
Browse latest Browse all 6219

Rekstur WOW var ósjálfbær

$
0
0

Í raun er það fagnaðarefni að Indigo gerir sig ekki breitt hérlendis, andstyggilegur launagreiðandi sem þrýstir launum niður til að geta lækkað verð á flugmiðum án þess að draga úr arðgreiðslum.

Gunnar Smári skrifar:

Jæja, þá er að sjá hversu fljótt önnur
flugfélög fylla gatið sem WOW skyldi eftir sig. Og hversu stórt það var, þetta
gat. Mörg missa vinnuna, en voru í reynd búin að missa hana því Indigo hefði
leitað til láglaunasvæða til að manna flugvélarnar og útvistað sem mestu af
öðrum störfum; hefði ekki sætt sig við íslenskan vinnumarkað. Í raun er það
fagnaðarefni að Indigo gerir sig ekki breitt hérlendis, andstyggilegur
launagreiðandi sem þrýstir launum niður til að geta lækkað verð á flugmiðum án
þess að draga úr arðgreiðslum.

Svo virðist sem vakt ríkisstjórnarinnar yfir löngu dauðastríði
félagsins hafi leitt til þeirrar niðurstöðu að hröð lending væri eina lausnin,
að ríkið gæti ekki stigið inn og reynt að gera eitthvað úr eignum og tækifærum
félagsins. Ef svo er; ætti fólk að sætta sig við þá niðurstöðu; rekstur WOW var
ósjálfbær. Og þau áhrif til þenslu sem WOW hafði á íslenskt atvinnu- og
efnahagslíf hlutu að ganga til baka fyrr en seinna.

Þessi frétt Rekstur WOW var ósjálfbær birtist fyrst á miðjan.is.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 6219

Trending Articles