Quantcast
Channel: Greinar – miðjan.is
Viewing all articles
Browse latest Browse all 6275

KAPÍTALISMI ER EKKI LAUSNIN, KAPÍTALISTINN ER VANDAMÁLIÐ

$
0
0

Gunnar Smári skrifar:

Þetta er svona stöndugur smáborgarabusiness, ætti að dafna meðan fjölskyldan leggur hart að sér, börnin setji sig inn í reksturinn ung og allir geti hjálpast að þegar illa árar.

Við lifum tíma sem hefur verið
gefið allskonar nafn; tímabil nýfrjálshyggju, fjármálavædds kapítalisma,
síðkapítalisma og allskonar. Nú ætla ég ekki að halda því fram að þessi saga af
litlu hóteli á Suðurlandi endurspegli öll einkenni vorra tíma; alls ekki. En
samt nokkur einkenni hans. Hótel Rangá er 52 herbergja hótel, eining sem
sögulega er klassískt fjölskyldufyrirtæki sem tryggt gat fjölskyldumeðlimum
öryggi í lífinu, öruggt starf og mat á diskinn; kannski efni til að mennta
börnin og gefa gömlu hjónunum tækifæri á að ferðast um heiminn í lok langrar
starfsævi. Þetta er svona stöndugur smáborgarabusiness, ætti að dafna meðan fjölskyldan
leggur hart að sér, börnin setji sig inn í reksturinn ung og allir geti
hjálpast að þegar illa árar. Þetta ætti að vera góður vinnustaður, tryggur
launagreiðandi og vegna nálægðar eigandans við starfsfólk eru takmörk fyrir
hversu hart hann gengur gagnvart launafólkinu. (Flest erum við þannig gerð að
við eigum erfitt með að brjóta gegn fólki augliti til auglits. En því miður
erum við líka þannig gerð að við eigum auðveldara með hafna þörfum og kröfum
fólks sem við sjáum ekki og heyrum ekki í. Þess vegna verða stórfyrirtæki
fljótt grimmar skepnur, stjórn þeirra á auðvelt með að leggja niður störf fólks
sem stjórnarfólk hefur aldrei séð, og mun aldrei sjá.)

En svona er goðsögn kapítalismans, um kapítalistann
sem uppsker laun erfiðs síns og hefur unnið fyrir sínu. Á grunni þessa byggir
verkaskiptingin sem við eigum að gangast undir; að kapítalistinn taki
ákvarðanir sem á endanum reynist öllum vel; húsbændum og hjúum. En fjölskylda
sem ræki 52 herbergja hótel á Suðurlandi væri varla raunverulegir kapítalistar;
ekki ef reksturinn er á mörkum smáborgararekstrar. Slíkt fólk á reksturinn og
fjárfestir ávinninginn af honum innan fyrirtækisins, fyrirtækið er einskonar
umgjörð fjölskyldunnar. Kapítalisti er hins vegar fjármagnseigandi sem dregur
fé út úr rekstrinum. Tilgangurinn með 52 herbergja hóteli á Suðurlandi er ekki
að byggja upp traustan rekstur sem tryggja muni afkomu fjölskyldunnar, eins og
goðsögnin segir; heldur tæki til að ná sem mestu fé út úr rekstrinum til að
nota einhvers staðar allt annars staðar.

Kapítalisti er hins vegar fjármagnseigandi sem dregur fé út úr rekstrinum. Tilgangurinn með 52 herbergja hóteli á Suðurlandi er ekki að byggja upp traustan rekstur sem tryggja muni afkomu fjölskyldunnar, eins og goðsögnin segir; heldur tæki til að ná sem mestu fé út úr rekstrinum til að nota einhvers staðar allt annars staðar.

Friðrik Pálsson kom með öðrum slíkum fjárfestum að
rekstri Hótel Rangá snemma á öldinni. Þetta voru ekki menn í leit að öryggi og
sæmilegri afkomu heldur menn í leit að gróða, eins miklum og mögulegt er.
Arðinum geta þeir náð með að auka tekjur og/eða lækka kostnað. Með því að hækka
verð og lækka kostnað, sem oftast fellst í því að halda niðri launum, ráðgerðu
þeir að ná fé út úr rekstrinum umfram það sem fjölskyldurekstur hefði gert á
síðustu öld. Þeir tróðu sér inn æi rekstur miðlungs stórs fyrirtækis, sem í
grunninn er fjölskyldurekstur, og ætluðu sér að sjúga út úr honum tíundu,
jafnvel fimmtu hverja krónu sem kom inn. Sem verðlaun fyrir hvað þeir væru
snjallir.

Og þeim hefur tekist þetta ágætlega. 2017 skiluðu
þessi 52 herbergi 90 m.kr. hagnaði eftir allan kostnað. Miðað við 260 m.kr.
arðgreiðslur á síðustu árum má reikna með að megnið af arðinum renni í dag til
fjárfestanna, kapítalistana. Út úr rekstrinum og eitthvað burt.

90 m.kr. hagnaður af 52 herbergjum er 1,7 m.kr. á
herbergi á ári og 145 þús. kr. á mánuði, 4750 kr. í hreinan hagnað á hverjum
sólarhring. Hótel Rangá selur mat og þar er hægt að leigja út sal fyrir
samkvæmi, svo það má vera að hagnaðurinn hafi aðrar uppsprettur en útleigu á
herbergjum. En þetta er eftir sem áður stærðarhlutföllin í þessum hótelrekstri,
á hverjum degi skilar hvert herbergi 4750 kr. í hagnað, samtals um 250 þús. kr.
– milljón á fjögurra daga fresti til að ráðstafa í annað en reksturinn; eftir
að allur kostnaður hefur verið greiddur, þ.m.t. fjármagnskostnaður vegna fjárfestinga.

Á Hótel Sögu eru starfsmenn um helmingi færri en
hótelherbergin og ef það sama á við um Hótel Rangá má reikna með að hreinn
hagnaður eftir allan kostnað, nema vegna eigendanna, sé um 9.500 kr. á hvern
starfsmanna alla daga ársins eða um 290 þús. kr. á mánuði á starfsmann. Sé
áfram miðað við Hótel Sögu þá voru meðallaun þar 2017 rétt rúmar 500 þús. kr.
með öllum launatengdum gjöldum. Ef það sama á við um Hótel Rangá má segja að af
samanlögðum hagnaði og launakostnaði hafi starfsfólkið fengið 2/3 en eigendurnir
1/3. Hlutur eigendanna kallast arðrán í Marxískri hagfræði, það sem þeir taka
til sín af arðinum af vinnu starfsfólksins í krafti valds síns.

Fyrir nokkrum áratugum hefði verið erfitt að sannfæra fólk um að þetta væri gott fyrirkomulag í fyrirtækjarekstri, að eigendur tækju sem næmi helmingi af launakostnaði starfsfólks, í vinnuaflsfrekum rekstri, út úr rekstrinum.

Fyrir nokkrum áratugum hefði verið erfitt að sannfæra
fólk um að þetta væri gott fyrirkomulag í fyrirtækjarekstri, að eigendur tækju
sem næmi helmingi af launakostnaði starfsfólks, í vinnuaflsfrekum rekstri, út
úr rekstrinum. Það hefði þótt léleg búmennska, græðgi og glóruleysi. Ástæða
þess að við þolum þetta í dag er að við höfum verið sannfærð um að peningar
vinni og hafi einskonar persónurétt; jafnvel að þeir peningar sem svokallaðir
fjárfestar leggja til rekstrar í upphafi vinni mikilvægustu vinnuna og eigi að
njóta forgangs um laun fyrir erfiði sitt. Ég skrifa „svokallaðir fjárfestar“
vegna þess að auðvitað er það ekki fjárfestir sem krefst þess að fá fé sitt til
baka út úr rekstrinum á 4-5 ára fresti; það kallast fjárflettir.

Í stað goðsagnarinnar um eljusömu fjölskylduna að baki
rekstri smárra og meðalstórra fyrirtækja er komin goðsögnin um frumkvöðulinn og
fjárfestinn sem eiga að vera skapendur vorra tíma, uppspretta hagvaxtar og
almennrar velsældar í vestrænum samfélögum. Undir blæju þessarar goðsagnar hafa
kapítalistar komið sér fyrir í fyrirtækjum, ekki bara allra stærstu
stórfyrirtækjunum heldur líka í millistórum fyrirtækjum eins og Hótel Rangá,
sem sögulega ættu að vera fjölskyldufyrirtæki; og mergsjúga þau. Ef þau mergsjúga
ekki fyrirtækin sjálf, skilja þau eftir án varasjóða og getu til að mæta
tímabundinni niðursveiflu; þá mergsjúga þeir starfsfólkið svo það á ekki fyrir
framfærslu út mánuðinn vegna þess að eigandinn tekur 1/3 af getu fyrirtækisins
til launagreiðslna þess til sín um hver mánaðamót. Oft gera þessi svokölluðu
fjárfestar hvort tveggja; halda launum starfsfólksins niðri og skræla
fyrirtækin að innan á sama tíma í nafni þess að frumskylda hvers fyrirtækis sé
að skila eigendum sínum vænum arði. Það kallast arðsemi; geta fyrirtækja til að
skila eigendum sínum arðgreiðslum. Það er orðið nánast eini mælikvarðinn sem
notaður er í almennri umræðu um hvort fyrirtæki séu góð eða slæm.

Friðrik Pálsson, sem fer fyrir svokölluðum fjárfestum
Hótel Rangá, hefur hneykslast á kröfum launafólks um að fá laun sem duga fyrir
framfærslu. Hann skammast yfir að það muni skemma arðsemi fyrirtækja, getu
þeirra til að borga honum sjálfum og öðrum eigendum arð.

Það eru hins vegar ekki kröfur starfsfólks sem skemmir
fyrirtæki, þess eru engin dæmi. Við þekkjum hins vegar endalaus dæmi þess að
arðsemiskröfur eigenda eyðileggi fyrirtæki, vinnustaði, rekstur og
atvinnugreinar. Og samfélög. Við eigum hins vegar erfitt með að ræða þetta
innan samfélags sem lítur einmitt á þessa eyðileggingu einmitt sem æðsta
markmið fyrirtækjarekstrar og frumforsendu atvinnulífs og efnahags
samfélagsins. Það er búið að stela af okkur hugtökunum og tungumálinu svo við
getum ekki rætt vandann.

Þessi frétt KAPÍTALISMI ER EKKI LAUSNIN, KAPÍTALISTINN ER VANDAMÁLIÐ birtist fyrst á miðjan.is.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 6275