

Kjaragliðnun var því gífurleg og hefur ekki verið leiðrétt enn.
Björgvin Guðmundsson skrifar:
Gífurleg kjaraskerðing hefur orðið hjá öryrkjum á
undanförnum árum af völdum stjórnvalda; þar ber bæst kjaraskerðing af völdum
krónu móti krónu skerðingar öryrkja síðustu 2 ár og 3 mánuði; einnig
kjaraskerðing vegna svokallaðrar búsetuskerðingar og vegna kjaragliðnunar.
Öryrkjabandalagið fékk
Talnakönnun ( Benedikt Jóhannesson) til þess að rannsaka hvað öryrkjar hefðu
orðið fyrir mikilli kjaraskerðingu á krepputímanum. Niðurstaðan var þessi :Á timabilinu 2009-2013 hækkaði launavísitalan um 23,5% en
neysluverð um 20,5%. Á sama tímabili hækkuðu allar tekjur öryrkja um 4,1% eftir
skatt en verðlag hækkaði um 20,5 á sama tímabili sem fyrr segir.
Á
tímabilinu 2008-2013 hækkuðu lágmarkslaun um 54,3% en lífeyrir einhleypra
öryrkja hækkaði um 29% á sama tímabili. Kjaragliðnun var því gífurleg og hefur
ekki verið leiðrétt enn.
Þessi frétt Gífurleg kjaraskerðing öryrkja birtist fyrst á miðjan.is.