Quantcast
Channel: Greinar – miðjan.is
Viewing all articles
Browse latest Browse all 6192

Þeir viðhalda óöryggi, kvíða og ótta

$
0
0

Án samningsréttar verkalýðsfélaga byggi meginþorri launafólks í kojum.

Gunnar Smári skrifar:

Spá: Aðgerðir VR gegn Almenna
leigufélaginu eru vísir að því samningsréttur samtaka leigjenda verði
viðurkenndur gagnvart leigufélögunum. Fjársterk verkalýðsfélög geta um tíma
þröngvað stóru leigufélögunum að semja um leiguverð og hækkanir og skapað með
því viðurkenningu og hefð og flutt síðan samningsumboðið yfir til
Leigjendasamtakanna.

Án
samningsréttar verkalýðsfélaga byggi meginþorri launafólks í kojum eins og
fólkið sem starfar innan starfsmannaleiga dagsins í dag, baðstofulífi á
yfirráðasvæði húsbænda sinna.

Leigumarkaðurinn í dag er frumskógur þar sem
villidýrin éta skógardýrin inn að beini. Við eigum að hemja þennan markað á
svipaðan hátt og gert var með vinnumarkaðinn, að
færa samtökum leigjenda samningsrétt eins og verkalýðsfélögin fengu fyrir
bráðum heilli öld.

Það er
löngu kominn tími til að viðurkenna að staða húseigenda gagnvart leigjendum er
svo ójöfn að án þess að flytja samningsréttinn til heildarsamtaka leigjenda mun
ofbeldi og fjárkúgun grassera áfram á leigumarkaðinum, leigufélögin ná að slíta
út úr leigjendum alla kaupmáttaraukningu og viðhalda óöryggi, kvíða og ótta.

Þessi frétt Þeir viðhalda óöryggi, kvíða og ótta birtist fyrst á miðjan.is.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 6192