

Fyrir hvern er þessi vitleysa í SA?
Gunnar Smári skrifar:
Morgunblaðið
birtir áróðurinn frá SA sem Fréttablaðið birti í gær, útúrsnúning úr kröfum
Eflingar sem félagið hefur hafnað. Hver er tilgangurinn með þessu?
Efling leggur
fram kröfur sem SA segir að merki 82% hækkun en Efling hafnar því og segist
alls ekki vilja svo mikið.
Jú, víst, segir
SA og fær blöðin sín, Fréttablaðið og Morgunblaðið, til að birta langar
fréttaskýringar um kröfur sem Efling kannast ekki við að gera.
Morgunblaðið og
Fréttablaðið og síðan Ríkisútvarpið og Fjármálaráðuneytið flytja svo
fréttir af því sem SA heldur að Efling hafi beðið um, en sem Efling þverneitar
fyrir að vilja, og engar fréttir af því sem Efling vill eða bað um.
Eftir að Efling sendi frá sér yfirlýsingu um að vilja alls
ekki svona miklar hækkanir birtir Fréttablaðið ítrekun um að ekki skuli hlusta
á það sem Efling segir heldur það sem SA segir að Efling hafi sagt.
Fyrir hvern er þessi vitleysa í SA, ráðherra samtakanna og
fjölmiðla sem miða allan sinn fréttaflutning að hagsmunum þeirra 200-300 manna
sem SA gætir hagsmuna fyrir? Þessir 200-300 eru örugglega voða kátir með að fá
sitt fyrir peninginn sem þeir eyddu í að kaupa fjölmiðla og stjórnmálafólk.
En heldur einhver annar að svona fréttaflutningur hafi aðrar
afleiðingar en þær að afhjúpa stjórnmála- og fjölmiðlafólk sem húsþræla
auðvaldsins?
Þessi frétt Af falsfréttum og húsþrælum auðvaldsins birtist fyrst á miðjan.is.