Quantcast
Viewing all articles
Browse latest Browse all 6223

Sjálftökuliðið stoppar aldrei

Image may be NSFW.
Clik here to view.
Image may be NSFW.
Clik here to view.
Image may be NSFW.
Clik here to view.
Jóhannes Björn.

Jóhannes Björn skrifar: Þetta er stríð upp á hvern einasta dag. Sjálftökuliðið stoppar aldrei og reynir stöðugt að vinavæða eignir fólksins í landinu. Landsvirkjun er greinilega einn feitasti bitinn í votum draumum nýfrjálshyggjumanna. Aðeins lögbundinn eignarréttur fárra manna á auðæfum hafsins er mikilvægari.

Það er sannarlega kominn tími til þess að rísa upp á móti þessum gripdeildarmönnum. Köllum kvótann heim og bjóðum upp á frjálsum markaði (ætti þessum talsmönnum frjáls framtaks ekki að líka það?), neglum eignarhald á orkulindum þjóðarinnar niður í nýrri stjórnarskrá og ræðum alvarlega um hvort ríkisreknir bankar skili skattgreiðendum meiri arði heldur en einkabankar.

Skrifin eru fengin af Facebooksíðu Jóhannesar.

Þessi frétt Sjálftökuliðið stoppar aldrei birtist fyrst á miðjan.is.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 6223