Heiðveig María Einarsdóttir, formannsframbjóðandi í Sjómannafélagi Íslands, skrifar: „Ég get nú ekki annað sagt en að ég sé gjörsamlega orðlaus yfir málflutningi formanns Sjómannafélags Íslands í Morgunblaðinu og á Bylgjunni síðustu daga. Að hann nái að heimfæra það að ég sé að skaða helsta hagsmunamál sjómanna og þar með talið félaga í Sjómannafélagi Íslands með því að benda á ósamræmi í lögum á heimasíðu félagsins við samþykki aðalfundar er atburðarás sem ég hefði ekki getið ímyndað mér að kæmi upp í mínum allra villtustu draumum.
Því miður læðist að mér sá grunur að nú verði ALLT reynt til að koma í veg fyrir framboð mitt og að málflutningur þessi sé undirbúningur að því að þeir beiti b-lið 10.gr laga félagsins á trúnaðarmannaráðsfundi í dag en þar segir :
,, b) Hver sá maður er brottrækur úr félaginu, í lengri eða skemmri tíma, sem að áliti trúnaðarmannaráðsfundar hefur unnið gegn hagsmunum félagsins, valdið því tjóni eða gert því eitthvað til vansa. Þetta á einnig við um þá sem ekki hlíta lögum þess eftir gefna áminningu.,,
Verði þetta niðurstaða fundarins þá verð ég nú að segja að fokið sé í flest skjól með lýðræði stéttarfélags okkar félagsmanna sem og örvæntingu yfirstjórnar til þess að klóra yfir sín mistök.
Á sama tíma hef ég enn þá von að trúnaðarmannaráð skoði öll gögn málsins ofan í kjölinn og afli sér upplýsinga til upplýstrar og ákvæðanna og þá af eigin frumkvæði.
Dæmi hver fyrir sig !!
Reykjavík 24. október 2018
Heiðveig María Einarsdóttir.“
Þessi frétt Heiðveig óttast brottrekstur úr Sjómannafélaginu birtist fyrst á miðjan.is.