Quantcast
Channel: Greinar – miðjan.is
Viewing all articles
Browse latest Browse all 6242

Logi og Katrín ólæs á samfélagið

$
0
0
Styrmir Gunnarsson: „Þessi skilningsskortur stjórnmálastéttarinnar getur orðið samfélaginu dýr.“

„Það var athyglisvert að fylgjast með málflutningi formanna hinna  svonefndu félagshyggjuflokka í Kastljósi , þeirra Katrínar Jakobsdóttur, forsætisráðherra og formanns VG og LogaEinarssonar, formanns Samfylkingarinnar,“ skrifaði Styrmir Gunnarsson á vef sinn, styrmir.is.

Styrmir bætist þar í stóran hóp sem varð fyrir vonbrigðum með þau bæði.

„Þau voru að ræða stöðuna í kjaramálum og alveg ljóst af þessum þætti að hvorugt þeirra skilur hvað er að gerast í samfélaginu. Katrín nefndi að vísu Kjararáð á nafn en á þann veg að búið væri að leggja það niður og frysta launakjör þingmanna, ráðherra o.fl. til næstu áramóta

Logi nefndi Kjararáð ekki á nafn.“

Og svo skrifaði ristjórinn fyrrverandi: „Ætli það sé liðin tíð að formenn félagshyggjuflokkanna taki eftirþví sem verkalýðshreyfingin segir? Þessi skilningsskortur stjórnmálastéttarinnar getur orðið samfélaginu dýr.“

Þessi frétt Logi og Katrín ólæs á samfélagið birtist fyrst á miðjan.is.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 6242