Ekki hefur verið armslegnd milli kjararáðs og fjármálaráðherra. Afleiðingarnar eru skýrar. Á vinnumarkaði verða átök, mikil átök. Vinabandið, það er kjararáð og fjármálaráðuneytið, bera fulla ábyrgð á hvernig komið er.
Þó ýmsum hafi tekist að kjafta sig í gegnum ýmnis vandamál er víst að það mun ekki duga að þessu sinni. Til þess var leikur vinabandsins of grófur. Brotsjóir munu skella á ríkisstjórninni í vetur og vandséð er að hún muni standa þá að af sér.
Villi á Akranesi segir í Mogganum: „Þetta lítur alls ekki vel út og nægir að nefna að fólk úr efri lögum samfélagsins hefur fengið launahækkanir sem nema 45% og upp í 56% á einu bretti, upphæðir sem nema allt að 1,2 milljónum. Hvernig eigum við í verkalýðshreyfingunni að fara inn í kjaravetur með þessi skilaboð frá þessum aðilum?“
Þar segir Kristján Þórður í Rafiðnaðarsambandinu: „Þessi barlómur um erfiða stöðu fyrirtækja byrjar þegar kemur að því að gera nýja kjarasamninga og þessi taktík er notuð til að reyna að slá á væntingar fólks.“ Og um kjararáð: „Þeir hafa sett línurnar, ef að fólk sem er í efsta stigi launaþrepsins getur fengið 45%, af hverju ekki aðrir?“
Verkalýðsforingjarnir hlusta ekki á barlóminn. Þeir benda á gjörðir vinabandsins. Það að hafa samþykkt að afleggja kjararáð og vita ekkert hvað komi í staðinn er einskis virði. Allur almenningur er þeirrar skoðunar að fólkið eigi inni það sem fyrirmenninn fengu. Og hana nú.
Ríkisstjórnir hafa sprungið af minna tilefni.
Sigurjón M. Egilsson.
Þessi frétt Kæfir kjararáð ríkisstjórnina? birtist fyrst á miðjan.is.