

Úlfar Hauksson skrifar:
Er þetta mál - tafir á málsmeðferð - virkilega þannig vaxið að starfsfólk ráðuneytis Sjálfstæðisflokksins ræður ekki við verkið og það þarf að ráða utanaðkomandi sjálfstæðismann - með 17 þús. á tímann í þrjá mánuði - til að koma með hugmyndir að lausn á vanda í málaflokki sem hefur verið á hendi flokksins nánast frá upphafi vega? Er ekki betri hugmynd að losa Sjálfstæðisflokkinn alfarið undan þessum málaflokki dóms- og löggæslumála sem eru í botnlausu og endalausu klúðri...?