

Jóhann Þorvarðarson skrifar:
Forsætisráðherra landsins Katrín Jakobsdóttir segir hegðun fjármálaráðherra afsakanlega. Með öðrum orðum, brot á sóttvarnarlögum er afsakanleg framkoma. Landsmenn eru komnir með fordæmi og góða réttlætingu. Nú bjóða bara allir til stórveislu og unga fólkið heldur sín fjölmennu partí um áramótin. Við erum nefnilega öll í þessu saman!
