


Þannig að efasemdir ráðherrans eru ekkert annað en falskur áróður.
Jóhann Þorvarðarson skrifar:
Fjármálaráðherra umgengst sannleikann af miklu frjálslyndi enda formaður hins einstaka Sjálfstæðisflokks. Nýjasta útspil ráðherrans er um eldri borgara og var það frumflutt úr ræðustól Alþingis í dag. Þar sagði hann orðrétt „Reyndar ætla ég að leyfa mér að efast um að nokkurt tímabil hafi liðið fyrr þar sem kaupmáttur ráðstöfunartekna lífeyrisþega hefur vaxið jafn hratt og við á um síðustu fimm til sex ár“.
Ég var handviss um að helblái ráðherrann var að fara með staðleysu í áróðursskyni og kannaði málið. Á umliðnum árum þá hefur kaupmáttur ráðstöfunartekna eldri borgara aukist um tæp 9 prósent. Hins vegar jukust sömu tekjur um tæp 17 prósent á árabilinu 1994-1998, hvoru tveggja mælt á raunvirði. Síðan má alveg fara dýpra í tölurnar. Eldri borgarar, sem eru um miðbik tekjuskalans, hækkuðu sínar tekjur um rúm 11 prósent á árabilinu sem ráðherrann talar um, en um tæp 17 prósent á árabilinu sem ég tek til samanburðar. Þannig að efasemdir ráðherrans eru ekkert annað en falskur áróður.