Quantcast
Channel: Greinar – miðjan.is
Viewing all articles
Browse latest Browse all 6239

Vinstri græn bugta sig og beygja fyrir Mammon

$
0
0

Launþeginn borgar undir Mammon.

Jóhann Þorvarðarson skrifar:

Vinstri græn hafa tekið upp nýtt átrúnaðargoð, peningaguðinn Mammon. Frá og með næstu áramótum þá mun einstaklingur sem hefur 666.667 krónur í mánaðarlaun bera 27 prósent raunskattbyrði. Á sama tíma mun einstaklingur sem hefur sömu tekjur af 100 milljón króna peningaeign sinni aðeins bera 12,9 prósent skattbyrði. Miðað er við 3 prósent ársverðbólgu. Það munar 93 þúsund krónum í ráðstöfunartekjur sem launþeginn hefur minna úr að spila.

Þessi niðurstaða fæst með tvennum hætti. Í fyrsta lagi, þá borga peningar eingöngu skatt af tekjum sem eru umfram verðbólgu (rauntekjur). Í öðru lagi, þá verður frítekjumark peninga hækkað úr 150 þúsundum króna í 300 þúsund krónur á ári. Á sama tíma lækkar persónuafslátturinn hjá launþegum enn eitt árið. Launþeginn greiðir skatta af nafnlaunum. Það er ekki sama Jón og séra Jón þó báðir noti samfélagslega innviði jafnt. Launþeginn borgar undir Mammon.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 6239