Quantcast
Viewing all articles
Browse latest Browse all 6240

Að smjatta á skítnum

Image may be NSFW.
Clik here to view.
Image may be NSFW.
Clik here to view.

Image may be NSFW.
Clik here to view.
Leiðari
Fyrrverandi framkvæmdastjóri Vinstri grænna sagði sig úr flokknum, þegar ríkisstjórn Katrínar varð að veruleika, með þeim orðum að þátttaka í ríkisstjórn, með Sjálfstæðisflokki, væri ámóta og ætla að éta skít í fjögur ár.

Líkingamálið þótti sumum gróft. Það má vel vera rétt. Við sem fylgdumst með atkvæðagreiðslum, frá Alþingi í morgun, um minniháttar lagfæringar á barnabótum og vaxtabótum varð bumbult við að fylgjast með fyrrum baráttufólki fyrir lagfæringunum éta ofan í sig eigin baráttu og gera sér að góðu allt það sem fjármálaráðherrann hafði lagt á borð þeirra.

Orð Drífu Snædal, um skítátið, birtust ljóslifandi fyrir augum okkar þegar hver ráðherra og þingmaður Vinstri grænna á eftir öðrum yfirgaf eigin baráttumál og gekk fyrrverandi fjandvinum á hönd.

Ómögulegt er annað en að Vinstri græn setji nú ný viðmið og jafnvel met í viðsnúningi stjórnmálaflokks. Til efs er að ámóta hafi gerst áður. Væri minnsti vilji til að nota gróft orðalag væri sjálfsagt að segja að þingflokkur VG hafi smjattað á skítnum í morgun. En til að gæta alls velsæmis er rétt að segja að þau sem skipa þingflokkinn hafi komið öllum á óvart, og eflaust sjálfum sér líka.

Sigurjón M. Egilsson.

Þessi frétt Að smjatta á skítnum birtist fyrst á miðjan.is.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 6240