Quantcast
Channel: Greinar – miðjan.is
Viewing all articles
Browse latest Browse all 6282

Stjórnarskráin

$
0
0

Björn Birgisson í Grindavík skrifaði og myndskreytti:

Segja má að baráttan fyrir breytingum á henni hafi í raun hafist daginn sem hún tók gildi.

Öllum var ljóst að hún var ekki sniðin fyrir nýfrjálst lýðræðisríki.

Framsóknarmenn og Sjálfstæðismenn voru hæstánægðir með plaggið vegna þess að þeir sáu í því skjól fyrir hagsmunagæslu sína - sjá það skjól enn og vilja ekki breyta neinu sem raunverulega skiptir máli.

Lengst af voru þeir flokkar stórir og sterkir og gátu ráðið því sem þeir vildu ráða - og gátu því lagst af þunga sínum gegn öllum alvöru breytingum á plagginu.

Nú er staða þessara flokka breytt.

Framsókn nagar líflínu þröskuldinn og Sjallar komnir niður undir 20% fylgi.

Samt tekst þeim að þvælast fyrir nauðsynlegum breytingum á stjórnarskránni!

Það geta þeir fyrst og fremst þakkað aumingjaskap þeirra sem segjast vilja breyta - en láta aldrei á það reyna fyrir alvöru.

**********

Nákvæmlega 38 árum eftir stofnun lýðveldisins ritaði baráttumaðurinn Vilmundur Gylfason orðin sem eru á meðfylgjandi mynd.

Þau orð eru í fullu gildi í dag - 38 árum eftir að þau voru rituð.

Ekkert hefur breyst.

Hagsmunagæslan hindrar enn nauðsynlegar breytingar á stjórnarskránni.

Eða eins og Vilmundur heitinn orðaði það:

Varðhundar hins þrönga flokksræðis hugsa um sjálfa sig og völd sín - völdin gegn fólkinu í landinu.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 6282