Quantcast
Viewing all articles
Browse latest Browse all 6202

Ríkir íhaldsmenn eru mestu sníkjudýrin

Image may be NSFW.
Clik here to view.
Image may be NSFW.
Clik here to view.
Image may be NSFW.
Clik here to view.

Láta almenning greiða tapið þegar þeir fara á hausinn.

Katrín Baldursdóttir skrifar:

Image may be NSFW.
Clik here to view.

„Reyndar mættu Sjálfstæðismenn líta sér svolítið nær ef þeir hafa áhyggjur af sníkjudýrum í samfélaginu, jafnvel í hópi sýslumanna,“ skrifar Illugi Jökuls og bendir hér réttilega á hver eru aðalsníkjudýrin í samfélaginu. Það eru auðmenn og íhaldsmenn sem hafa orðið ríkir á því að liggja upp á almenningi. Hirða arðinn af auðlindum almennings, koma sér í feit embætti hjá ríkinu og greiðan aðgang að opinberum sjóðum, fá lánaða peninga almennings á súper góðum kjörum, láta almenning greiða tapið þegar þeir fara á hausinn, neita að borga sanngjarna skatta í sameiginlega sjóði og koma peningunum frekar fyrir í skattaskjólum.

Þetta eru sömu mennirnir sem vilja ekki hækka atvinnuleysisbætur vegna þess að þá vilji atvinnulausir ekki vinna. Þá sé hætta á að þeir verði sníkjudýr og leggist upp á samfélagið. Slíkir aumingjar eigi auðvitað ekki að eiga ofan í sig að éta, hvað þá þak yfir höfuðið.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 6202