


Margir spyrja hvort þetta hafi verið ábyrg hegðun?
Jóhann Þorvarðarson skrifar:
Trump forseti byrjaði kosningabaráttuna í Flórída á fimmtudaginn. Hann var síðan með annan fjöldafund í Tulsa í Oklahóma um helgina. Á fundinn mættu níu þúsund manns á leikvang sem tekur nítján þúsund í sæti. Trump var ekki með hugann við mikla fjölgun nýrra Covid-19 smita í báðum fylkjunum, en myndin að neðan er fyrir Flórída. Ástandið er eins í Oklahóma. Margir spyrja hvort þetta hafi verið ábyrg hegðun?
