


Ekki veit ég um það, en getur verið að Bláa Lónið sé meðal rummunganna?
Jóhann Þorvarðarson skrifar:
Hjá sumum þá er ekkert heilagt og er helsta verkfærið drullusokkur eins og píparar nota þegar annað þrýtur. Á dögunum gengu Hræsnarasamtök atvinnulífsins hart fram í að verja gjörðir ónafngreindra fyrirtækja sem höfðu sagt upp fólki og vildu sjálf ekki greiða uppsagnarlaun eins og kjarasamningar kveða á um. Misnota átti Hlutastarfaleiðina og færa kostnað vegna uppsagna yfir á almenning. Rummungarnir ætluðu að vaða með sokkinn beint ofan í ríkissjóð og soga almannafé upp til eigin nota. Eftir á skýring að lögin um hlutastarfaleiðina hafi verið óglögg er eftirminnileg og hefði bara getað komið fá rumpulýð. Ekki veit ég um það, en getur verið að Bláa Lónið sé meðal rummunganna?