Quantcast
Viewing all articles
Browse latest Browse all 6238

Ekki vera slíkar smásálir

Image may be NSFW.
Clik here to view.
Image may be NSFW.
Clik here to view.
Image may be NSFW.
Clik here to view.

Menn hjá SA hljóta að breyta um afstöðu í þessu máli.

Jón Örn Marinósson:

Ekki hefði ég trúað því að óreyndu að Samtök atvinnulífsins neituðu að taka þátt í því með heilbrigðisyfirvöldum og okkur landsmönnum öllum að sporna eins og kostur er gegn því að COVID-19 kórónuveiran dreifist svo hratt um landið að útbreiðsla hennar og alvarleg veikindi af hennar völdum verði nær óviðráðanlegt verkefni fyrir heilbrigðisþjónustuna. Menn eiga ekki að vera slíkar smásálir að vitna í einhver laga- eða kjarasamningsákvæði til að rökstyðja að þeim sé ekki skylt að liðsinna löndum sínum í þessari baráttu með því að greiða fólki laun sem er í sóttkví. Nóg hefur launafólk og íslenskir skattgreiðendur lagt fram að þessu til fyrirtækja í Samtökum atvinnulífsins þó að þau skorist ekki undan því þar á ofan að taka þátt í kostnaði vegna fyrirmæla heilbrigðisyfirvalda. Menn hjá SA hljóta að breyta um afstöðu í þessu máli.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 6238