Quantcast
Channel: Greinar – miðjan.is
Viewing all articles
Browse latest Browse all 6233

Er Davíð fúlasta alvara?

$
0
0

...að vinnu­markaður­inn verði sett­ur í upp­nám...

Það er hreint magnað að lesa hluta leiðara Moggans í dag. Þar nokkru púðri eytt í Dag borgarstjóra og meirihlutann í borginni. Það hefur allt verið sagt áður, sumt að brýnni þörf. Annað er tuð. En niðurlagið er hreint magnað. Þar er veitt innsýn í huga Davíðs Oddssonar. Staðfesta hans gegn láglaunakonunum sem vinna hjá borginni er hreint ótrúleg.

„Nú­ver­andi meiri­hluti í Reykja­vík hef­ur unnið mikið tjón með marg­vís­leg­um ax­ar­sköft­um og ein­streng­ings­legri og jafn­vel of­stæk­is­fullri stefnu sinni í ótal mál­um. Það tjón sem hann kann nú að vera að vinna gagn­vart stöðunni á vinnu­markaði og þar með gagn­vart at­vinnu­stigi í land­inu og vel­meg­un alls al­menn­ings er þó lík­lega mun stærra og gæti haft enn al­var­legri af­leiðing­ar til lengri tíma litið. Von­andi tek­ur borg­ar­stjóri eig­in orð um for­ystu­leysi til sín og út­skýr­ir fyr­ir öðrum borg­ar­full­trú­um meiri­hlut­ans hvaða af­leiðing­ar það muni hafa ef Reykja­vík­ur­borg stend­ur ekki í lapp­irn­ar gagn­vart kröf­um um að vinnu­markaður­inn verði sett­ur í upp­nám í því viðsjár­verða efna­hags­ástandi sem nú er uppi.“

Þarna er fjallað um konurnar og Eflingu sem þær stundi hrein og klár hryðjuverk. Að áframhaldandi byggð í landinu sé í hættu. Að þjóðin standi frammi fyrir vá sem verða að stöðva. Er Davíð alvara þegar hann skrifar svona? Ef svo er þá er alvara Davíðs sú fúlasta sem heyrst hefur lengi.

-sme


Viewing all articles
Browse latest Browse all 6233