


Er ekki bara best fyrir Vinstri græna að sameinast Sjálfstæðisflokknum strax og hætta þessum skollaleik?
Jóhann Þorvarðarson skrifar:
Loforð ríkisstjórnarinnar um að breyta tekjuskattskerfinu í þágu tekjulágra í sambandi við Lífskjarasamninga er komin í framkvæmd að mestu. Niðurstaðan er sláandi. Launahæstu fá 64% meira í sinn hlut en lægst launuðu. Og rúmlega 51% meira en sá sem er með 900 þúsund krónur í laun á mánuði. Áorðnar breytingarnar stuðla að auknum ójöfnuði. Tekjuhæstu fá meira en allir aðrir! Er ekki bara best fyrir Vinstri græna að sameinast Sjálfstæðisflokknum strax og hætta þessum skollaleik?
