Quantcast
Channel: Greinar – miðjan.is
Viewing all articles
Browse latest Browse all 6192

Hugmynd að bíómynd

$
0
0

Ragnar Þór Ingólfsson skrifar:

Meirihlutinn í borgarstjórn kynnir! Í samvinnu við Viðskiptaráð og Samtök atvinnulífsins! Byggt á skáldsögum leiðarahöfunda Fréttablaðsins og Moggans!

Höfrungahlauparinn!

Átakasaga láglaunastétta þar sem svik, ánauð og ofbeldi eru nær daglegur brauðmoli. Þetta er saga láglaunafólks sem reynir á æsispennandi hátt að brjótast til mannsæmandi lífskjara undir ströngu eftirliti hákarlasveita sem svífast einskis í baráttu sinni fyrir aukinni misskiptingu.

Aðalhlutverk: Félagsmenn Eflingar, Halldór Benjamín Þorbergsson, Hörður Ægisson og Brynjar Níelsson. Sérstakur gestur í aukahlutverki: Guðmundur Ragnarsson.

Leikstjóri: Björn Bjarnason
Framleiðandi: Dagur B. Eggertsson


Viewing all articles
Browse latest Browse all 6192