Quantcast
Viewing all articles
Browse latest Browse all 6236

Veðsettur vínkjallari og koníaksstofa

Image may be NSFW.
Clik here to view.
Image may be NSFW.
Clik here to view.
Image may be NSFW.
Clik here to view.

„Sjáiði ekki veisluna,“ sagði Bjarni Ben. Gæjarnir í Gamma töldu sig sjá veisluna. Þeir innréttuðu bæði vínkjallara og koníaksstofu í „vinnustaðnum“ sínum. Hvorki þeir né félagið höfðu minnstu efni á ruglinu svo einhverjir aðrir ámóta, í öðru kompaníi og í öðru húsi, lánuðum þeim hálfan milljarð með veði í húsinu og þá kannski sérstaklega í vínkjallaranum og koníaksstofunni.

Áður var sagt: „Eftir einn ei aki neinn“. Hvers vegna vita flest okkar. Gæjarnir í Gamma, sem höfðu bæði vínkjallara og koníak eins og hver gat í sig látið, töldu sig vita betur. Þeir náðu til sín ótal peningnum héðan og þaðan. Lögðu á ráðin og brotlentu. Allsgáðir? Það hefur ekki komið fram. Í frétt Moggans í morgun er einhvers onar innihaldslýsingin á geggjuninni. Lær hana fylgja með hér að neðan. Eftir lestur hennar vaknar sá grunur að víðar séu vínkjallarar og koníaksstofur. Allt of víða.

-sme

Gefið var út trygg­inga­bréf á hús­eign­ina 2. maí í fyrra. Gerði Gamma Capital Management þá kunn­ugt um að til trygg­ing­ar skil­vísri og skaðlausri greiðslu á öll­um skuld­um og fjár­skuld­bind­ing­um við Kviku banka væri gefið út 500 millj­óna bréf. Sam­kvæmt heim­ild­um blaðsins þarf upp­hæðin ekki að end­ur­spegla ná­kvæm­lega verðmæti eign­ar­inn­ar. Á hinn bóg­inn hljóti fjár­hæðin á trygg­inga­bréf­inu að fara nærri áætluðu verðmæti eign­ar­inn­ar, svo trygg­ing­in haldi.

Sam­kvæmt af­sali sem gefið var út í októ­ber 2013 keypti GAM Management hf., sem þá var til húsa að Klapp­ar­stíg 19, eign­ina af Dalsnesi ehf. Um­samið kaup­verð kom ekki fram á af­sal­inu, né held­ur virðist kaup­samn­ing­ur hafa verið birt­ur. Hins veg­ar voru gef­in út tvö veðskulda­bréf á eign­ina í októ­ber 2013 að fjár­hæð 80 og 120 millj­ón­ir króna en kröfu­hafi var Arion banki.

Á vefsíðu Gamma er fjallað um sögu Garðastræt­is 37. Húsið sé byggt árið 1939 í fúnkís­stíln­um og sé eitt fyrsta slíka húsið á Íslandi. Arki­tekt var Gunn­laug­ur Hall­dórs­son en húsið var reist fyr­ir Magnús Víg­lunds­son at­hafna­mann sem keypti lóðina árið 1936.

Fyrstu árin hafi húsið varið heim­ili Magnús­ar en jafn­framt hafi hann stýrt rekstri sín­um þaðan. Magnús hafi síðar boðið húsið til sölu 1965.

Rík­is­sjóður hafi þá keypt húsið. Meðal ann­ars hafi þar haft aðset­ur Tunnu­verk­smiðja rík­is­ins og hin sögu­fræga Síld­ar­út­vegs­nefnd sem húsið hafi síðar verið kennt við.

Húsið var selt í annað sinn og fluttu aug­lýs­inga­stof­an Fíton og marg­miðlun­ar­fyr­ir­tækið Atóm­stöðin þangað um alda­mót­in. Gamma tók því næst við hús­eign­inni.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 6236