Quantcast
Channel: Greinar – miðjan.is
Viewing all articles
Browse latest Browse all 6196

Sjálfstæðisflokkurinn er með delluhugmyndir

$
0
0

Það er rannsóknarefni hvers vegna aðrir stjórnmálaflokkar standa í röð til að koma Bjarna og öðrum mönnum með minnihlutaskoðanir Sjálfstæðisflokksins til valda.

Gunnar Smári skrifar:

Umræða Sjálfstæðisflokksfólks um sölu á hlut ríkisins byggir á delluhugmyndum og er án nokkurs samband við þann raunveruleika sem fólk lifir innan. Þegar fólkið sem lifir og starfar í raunveruleika venjulegs fólks var spurt hvort það vildi að ríkið ætti hlut í bönkunum var aðeins um 14% sem var neikvætt gagnvart því. Þetta er sama hlutfall og kaus Davíð Oddsson í forsetakosningunum, en Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra gerði það einmitt. Hann er því vanur að hafa afleitar minnihlutaskoðanir og er gagnrýnislaus á þær.

Í þessari frétt segir hann að ríkið ætti að selja hlut sinn í bönkunum til að minnka áhættu, sem sýnir enn betur hversu lítil tengsl Bjarni hefur við raunveruleikann. Skaði Íslendinga af rekstri ríkisbanka mælist ekki í samanburði við þann skaða sem landsmenn hafa þurft að bera vegna einkabanka. Það er auðvitað ástæða þess að landsmenn vilja að ríkið eigi bankana áfram.

Bjarni dregur í þessu sem öðru öfugar ályktanir við venjulegt fólk: Hann vill ekki auka framlög til heilbrigðismála, ekki hækka skatta á hin ríku, ekki innheimta raungildi veiðigjalda fyrir afnot af auðlindum almennings, ekki afnema skerðingar á lífeyrisgreiðslum, ekki borga launafólki laun sem duga fyrir framfærslu, ekki auka framlög til skattrannsókna vegna skattsvika hinna ríku ... og svo má telja endalaust. Það er rannsóknarefni hvers vegna aðrir stjórnmálaflokkar standa í röð til að koma Bjarna og öðrum mönnum með minnihlutaskoðanir Sjálfstæðisflokksins til valda.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 6196