Quantcast
Channel: Greinar – miðjan.is
Viewing all articles
Browse latest Browse all 6226

Norska leiðin í Húsasmiðjunni

$
0
0

Fara að dæmi Samherja og fá norskan sérfræðing til að þæfa málið fyrir dómstólum.

Halldór Árni Sveinsson skrifar:

Heyrst hefur að Húsasmiðjan, sem nú hefur verið stefnt fyrir meintan hugverkastuld vegna ólöglegrar notkunar á lagi Unnsteins Manúels í Retro Stefson í auglýsingu sinni, ætli að fara að dæmi Samherja og fá norskan sérfræðing til að þæfa málið fyrir dómstólum.

Samkvæmt ekkifréttinni hefur Húsasmiðjan fengið Rolf Løvland til að sýna fram á að engin líkindi séu með lagi Unnsteins og stefinu í umræddri auglýsingu.
Aðspurður um hvort hann hefði aldrei heyrt um keðjuábyrgð fyrirtækja, sagði talsmaður Húsasmiðjunnar, að það væru til keðjur í ýmsum verðflokkum í Skútuvoginum, en mjög erfitt að fá þær endurgreiddar ef galla kæmu upp.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 6226