Quantcast
Channel: Greinar – miðjan.is
Viewing all articles
Browse latest Browse all 6229

Á Ásgeir að rannsaka Ármann?

$
0
0

Svo eru ráðamenn voða hissa að Ísland sé skráð peningaþvottastöð.

Jóhann Þorvarðarson skrifar:

Hver man ekki eftir Ármanni Þorvaldssyni fyrrum forstjóra Kviku banka, nú aðstoðarforstjóri. Hann var einn af forkólfum Kaupþings sem kostaði þjóðarbúið skrilljónir. Víðfrægt var vörumerkið „Kaupthing Edge“. Samkvæmt upplýsingum frá grútmáttlausu íslensku fjármálaeftirliti þá er gjaldþrot Kaupþings fimmta stærsta gjaldþrot heimssögunnar. Það er minnisvarði úr graníti um árangur Ármanns og annarra samverkamanna hjá Kaupþingi!

Nú hafa Kevin Stanford og Karen Millen sem voru stórir viðskiptavinir Kaupþings skrifað tvö opin bréf til Ármanns Þorvaldssonar sem finna má á vef Kjarnans. Innihald bréfanna er magnað og er skyldulesning. Saka þau Ármann um blekkingar, óheiðarleika, svindl og svínarí í viðskiptum við þau. Rökstyðja þau mál sitt með fjölmörgum skjölum og símtalsupptökum! Kalla þau eftir að fram fari opinber rannsókn á háttsemi Ármanns Þorvaldssonar.

Varaseðlabankastjórinn Unnur Gunnarsdóttir fer fyrir hinu slappa fjármálaeftirliti landsins.

Hér vandast málið. Hver á að rannsaka Ármann? Æðsti yfirmaður Fjármálaeftirlits á Íslandi er hinn alræmdi seðlabankastjóri Ásgeir Jónsson. Þið munið að Ásgeir og Ármann voru báðir yfirstjórnendur hjá Kaupþingi. Þarna eru óeðlileg hagsmunatengsl komin upp. Tengslin sýna enn og aftur dómgreindarleysi Katrínar Jak forsætisráðherra þegar hún skipaði Ásgeir sem seðlabankastjóra. Ákvörðunin er einnig kennslubókardæmi um dugleysi!

Og það er meira. Varaseðlabankastjórinn Unnur Gunnarsdóttir fer fyrir hinu slappa fjármálaeftirliti landsins. Hún er beinn undirmaður Ásgeirs. Unnur var aðstoðarforstjóri eftirlitsins í tíð Jónasar Fr. Jónssonar fyrir hrun. Heilt bankakerfi hrundi á þeirra vakt. Þar er annar minnisvarði úr graníti. Spáið í hvað íslenska kerfið er samansúrrað af fólki sem voru leikendur fyrir hrun.

Katrínu forsætisráðherra finnst þetta vera okkar langbesta fólk til að gegna æðstu stöðum íslenskra fjármála! Hér á landi hefur ekkert breyst frá því fyrir hrun. Sama andvaraleysið og sömu leikendurnir. Katrín Jak dettur bara inn í kerfið eins og flís við brot. Þetta er mörgum kjósendum mikil vonbrigði!

Svo eru ráðamenn voða hissa að Ísland sé skráð peningaþvottastöð. Segja allt á misskilningi byggt og ósanngjarnt.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 6229