Quantcast
Channel: Greinar – miðjan.is
Viewing all articles
Browse latest Browse all 6242

Skýr dæmi um ábyrgðarleysiskúltúr stjórnmálanna

$
0
0

Ábyrgð felst í því að taka afleiðingum gerða sinna.

Stefán Erlendsson skrifar:

Í kjölfar hrunsins kyrjuðu stjórnmálamenn möntruna um að ekki mætti persónugera vandann. Katrín Jakobsdóttir tók í sama streng í tengslum við Landsréttarmálið. Sagðist mótfallin því að smætta kerfislægan vanda í einstök siðferðileg úrlausnarefni. Í Silfrinu lýsti Páll Magnússon yfir að hann nennti ekki að elta ólar við það hverjir ættu sök á því að ekki hefði tekist betur til með Landeyjahöfn en raun ber vitni.

Allt eru þetta skýr dæmi um þann ábyrgðarleysiskúltúr sem einkennir íslensk stjórnmál. Fæstir á þeim vettvangi bera nokkurn tíma nokkra ábyrgð á eigin misgerðum eða klúðri.

Ábyrgð felst í því að taka afleiðingum gerða sinna. Í stað þess að hlutaðeigandi axli ábyrgð (eða sæti henni að öðrum kosti) er vísað á kerfið - að um sé að ræða kerfislægan vanda. Afleiðingarnar bitna þannig beint eða óbeint á almenningi. Seilst er í vasa skattgreiðenda til að borga fyrir klúðrið...

Núna borga skattgreiðendur dómurum í Landsrétti sem eru í launuðu leyfi vegna dóms Mannréttindadómstóls Evrópu. Dóms sem er afleiðing af misráðnum afskiptum þáverandi dómsmálaráðherra af skipun dómara í réttinn....


Viewing all articles
Browse latest Browse all 6242