


Útgerðin á að greiða fullt markaðsgjald fyrir aðgang að sameiginlegri auðlind.
Úlfar Hauksson skrifaði:

„Dekur sitjandi ríkisstjórnar - undir forystu VG - við útgerðarauðvaldið er hrein og klár sturlun. Nú á að lækka veiðigjöld enn frekar - og gera að nánast engu - á sama tíma og álögur á alþýðu eru aukin. Ef þetta gengur eftir greiðir almenningur svipaða upphæð í útvarpsgjald og útgerðin í veiðigjöld! Ríkjandi stjórnvöld eru algerlega undir hælnum á sérhagsmunaöflum. Útgerðin á að sjálfsögðu að greiða fullt markaðsgjald fyrir aðgang að sameiginlegri auðlind þjóðarinnar.“