Quantcast
Channel: Greinar – miðjan.is
Viewing all articles
Browse latest Browse all 6238

Græddi 3 milljarða og rak hundrað manns

$
0
0

Bankarnir hafa sogað upp úr þjóðlífinu um 2% af landsframleiðslu frá Hruni.

Gunnar Smári skrifar.

Gunnar Smári.

Banki sem græddi 3 milljarða króna á fyrri helming ársins rak í
dag 100 manns til að bæta um um einum milljarði við hagnað sinn. Bankastjórinn
barmaði sér yfir erfiðum rekstri og einkum fyrir að þurfa að borga skatt til
ríkissjóðs. Og fjármálaráðherra tekur undir að lækka verði skatta á bankanna.
Svo þeir geti grætt meira. Svona var ein fréttin hjá Ríkisútvarpinu í kvöld.


Við lifum sturlaða tíma. Þessi frétt var af samfélagi sem misst hefur vitið.

Hvað
vilja mennirnir? Bankarnir hafa sogað upp úr þjóðlífinu um 2% af
landsframleiðslu frá Hruni, meira en tvöfalt meira
en t.d. í Bandaríkjunum, þar sem það er viðurkennd staðreynd í
samfélagsumræðunni að bankarnir séu krabbamein á fólki og fyrirtækjum. Hér er
hins vegar í alvörunni rætt um það í útvarpi ríkisins af fréttamönnum þar og af
fjármálaráðherra, sem ætti að gæta hagsmuna almennings, að bankarnir fái ekki
nóg, að tryggja þurfi þeim þyngra pund af líkama almennings. Við lifum sturlaða
tíma. Þessi frétt var af samfélagi sem misst hefur vitið.

Ef eitthvert vit væri í fréttastofu Ríkissjónvarpsins hefði
fréttin átt að snúast um fullkomið ábyrgðarleysi eigenda Arionbanka að segja
upp 100 starfsmönnum þegar niðursveifla er hafin í efnahagslífinu til þess eins
að auka hagnað bankans til að geta greitt sér meiri arð. Og fréttastofan hefði
átt að afhjúpa innihaldsleysi þeirra kenninga sem fjármálaráðherrann byggir
stefnu sína á, um að eðlilegt sé að reka fyrirtæki aðeins út frá hagsmunum
hluthafa og getu þeirra til að greiða út arð, en ekki út frá hagsmunum
starfsfólks, samfélags og umhverfis. Þau eru fá eftir í heiminum sem enn halda
að fyrirtæki sé aðeins hægt að meta út frá arðgreiðslum til eigenda, en því
miður stjórna þau Íslandi, sitja í ríkisstjórn, reka bankanna og segja okkur fréttir
á vegum ríkisins.

Þessi frétt Græddi 3 milljarða og rak hundrað manns birtist fyrst á miðjan.is.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 6238