

Gunnar Smári skrifar:

Nú heita öll hrossakaup fámennrar og einangraðrar forystu VG við Sjálfstæðisflokkinn (og Framsókn, hún er víst með) þverpólitísk sátt. Síðast þegar spurt var í skoðanakönnun var afgerandi meirihluti almennings andsnúinn veggjöldum. Það stoppar ekki forystu þessara flokka við að kalla ásetning sinn um vegatolla, útvistun vegakerfisins til einkafyrirtækja og aðrar nýfrjálshyggjulausnir í samgöngumálum þverpólitíska sátt. Forysta þessara flokka telur sig spanna alla pólitík, að utan hennar sé engin pólitík, að engu skipti hvað almenningi finnst.
Þessi frétt Nú heita hrossakaup pólitísk sátt birtist fyrst á miðjan.is.