Quantcast
Channel: Greinar – miðjan.is
Viewing all articles
Browse latest Browse all 6240

SKATTLEGGJUM HIN RÍKU!

$
0
0

Hið opinberra varð því af um 8,2 milljörðum króna vegna skattaafsátts á fjármagnstekjur.

Gunnar Smári skrifar:

Samkvæmt tekjublaði Stundarinnar var 0,1% tekjuhæstu íbúa
landsins með um 39,7 milljarða króna í tekjur á árinu 2018. Þar af voru 8,1
milljarður króna launatekjur en 31,6 milljarðar króna voru fjármagnstekjur.
Rétt tæplega 80% af tekjum hinna tekjuhæstu komu af fjármagni, ekki af atvinnu.
Af þessum sökum var skattbyrði hinna allra tekjuhæstu mun lægri en hjá fólki
almennt eða 24,6%. Það er álíka skattbyrði og hjá launafólki með 440 þúsund
krónur á mánuði. Meðallaun 0,1% hinna tekjuhæstu var hins vegar um 15,4 m.kr. á
mánuði, 35 sinnum hærri en launafólkið sem bar álíka skattbyrði.

Samanlagður skattur 0,1 prósentsins var 9,8 milljarðar króna en
hefði átt að vera 18,0 milljarðar króna ef fjármagnstekjur bæru sambærilega
skatta og launatekjur. Hið opinberra varð því af um 8,2 milljörðum króna vegna
skattaafsátts á fjármagnstekjur. Það jafngildir að hver hinna 215 tekjuhæstu
hafi fengið 38 m.kr. skattaafslátt árið 2018 eða sem nemur 3,2 m.kr. á mánuði.

Það er nálægt þeim fjölda öryrkja sem var á fullum örorkubótum í fyrra.

Skattaafslátturinn sem 215 hinna tekjuhæstu fengu vegna tekna
ársins 2018 er sama upphæð og hefði dugað til að afnema skatta af 13.631
öryrkjum, sem höfðu 281.972 kr. í örorkubætur með heimilisuppbót í fyrra. Það
er nálægt þeim fjölda öryrkja sem var á fullum örorkubótum í fyrra. Í stað þess
að láta það fólk, sem án vafa er með því allra fátækasta á landinu, njóta
skattleysis kusu stjórnvöld að verja sömu upphæð til að gefa allra ríkasta
fólkinu á Íslandi, aðeins 215 manns, skattaafslátt upp á 8,2 milljarða króna.
Skattaafsláttur hvers og eins hinna tekjuhæstu jafngildir að meðaltali því sem
dugað hefði til að gefa eftir skatta til 63 á örorkubótum, hækka
ráðstöfunartekjur hvers um sig um rúmar 50 þús. kr. á mánuði. Það munar
sannarlega um minna.

Þar sem útsvar er ekki lagt á fjármagnstekjur koma
sveitarfélögin sérstaklega illa út úr skattfríðindum hinna ríku. 0,1% hinna
tekjuhæstu hefðu átt að borga 5,8 milljarða króna í útsvar en greiddu aðeins
1,2 milljarða króna. Tapaðar útsvarstekjur vegna tekna 0,1% hinna tekjuhæstu
nema um 4,6 milljörðum króna. Það eru um 2% af öllum útsvarstekjum
sveitarfélaganna, tekjur sem ekki eru innheimtar af allra tekjuhæsta fólkinu.
Fyrir þær tekjur mætti reka leikskóla fyrir níu þúsund börn, þ.e. tryggja öllum
börnum leikskólavist frá enda fæðingarorlofs foreldranna og gott betur. Sú
ákvörðun að láta hin ríku ætíð ganga fyrir, að styrktarframlagið til þeirra
komu fyrst og skerði möguleika á að byggja upp þjónustu innan sveitarfélaganna
veldur því að við búum í ójafnara samfélagi, óöruggara, erfiðara og dýrara.

Þessi frétt SKATTLEGGJUM HIN RÍKU! birtist fyrst á miðjan.is.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 6240