Quantcast
Channel: Greinar – miðjan.is
Viewing all articles
Browse latest Browse all 6240

Fjárlögin: Ekki teljandi skattalækkun hjá þeim fátækustu

$
0
0

Gunnar Smári skrifar:

Miðað við verðbólguspár, umsamdar launahækkanir samkvæmt
nýgerðum kjarasamningi og fyrirhugaða lækkun persónuafsláttar fæ ég ekki út
teljandi lækkun skattbyrði lægstu launa eða launa í lægra fjórðungi verkafólks
og enga lækkun hjá fólki með miðlungslaun. Nema ráðgert sé að hækka umtalsverð
húsnæðisbætur, vaxtabætur og/eða barnabætur, ef svo væri hefði það líklega
verið kynnt með lúðrablæstri.

Ég vona að ríkisstjórnin ætli ekki að kynna þetta sem
stórkostlega kjarabót fyrir launafólk eða
verkalýðshreyfingin að láta sem svo sé gagnvart sínum félagsmönnum. Eftir
þessar breytingar mun fólk undir þeim tekjum sem duga fyrir mat og húsnæði
eftir sem áður verða skattlagt á sama tíma og fjármagns- og fyrirtækjaeigendur búa
við lægri skatta hérlendis en þekkist í okkar heimshluta.

Mér sýnist áköf umræða um lífskjör fólks á
lægstu launum litlu hafa skilað, hvorki umsamdar launahækkanir í nýgerðum
kjarasamningum né aðgerðir ríkisstjórnarinnar ná að lagfæra kjör umtalsvert.

Þessi frétt Fjárlögin: Ekki teljandi skattalækkun hjá þeim fátækustu birtist fyrst á miðjan.is.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 6240