Quantcast
Channel: Greinar – miðjan.is
Viewing all articles
Browse latest Browse all 6226

Fjárlögin: Ráðherrar fái meiri skattalækkun en fátækir

$
0
0

Þetta þýðir að ráðherrar í ríkisstjórninni fá meiri skattalækkun en sá sem varla eða ekki nær endum saman.

Marinó G. Njálsson skrifar:

„Við
erum að flýta þess­ari aðgerð, sem bæði er hugsuð til þess að lækka tekju­skatt
sér­stak­lega hjá tekju­lægri hóp­un­um og skil­ar meiri lækk­un til tekju­lægstu hóp­anna en þeirra tekju­hærri, og líka að inn­leiða
auk­inn jöfnuð í gegn­um þrepa­skipt skatt­kerfi.“ Þetta voru orð Katrínar
Jakobsdóttur, forsætisráðherra í dag.

Já,
mikil ósköp, eitthvað munu „tekjulægri“ hóparnir fá í sinn hlut. En af þeim
hópum, sem greiða skatta, þá teljast hinir tekjulægstu greinilega ekki til
þeirra „tekjulægri“! Þannig er ávinningur þess sem er með 240.000 kr. á mánuði
minni en þess sem er með 750.000 kr. á mánuði. Munar svo sem ekki miklu eða 425
kr. á mánuði. Það sem meira er, að sá sem er með 900.000 kr. eða meira í tekjur
fær meiri ávinning af skattabreytingunum, en sá sem er með 220.000 kr. á
mánuði. Skiptir þá engu máli hvort tekjurnar eru 900.000 kr. eða 25.000.000
kr., sá sem lendir í hátekjuskattþrepinu fær skattana sína lækkaða um 6.943
kr., meðan sá með 220.000 kr. fær lækkun upp á 6.918 kr.

Bara að benda á þá staðreynd, að bæði forsætisráðherra og fjármálaráðherra greina ekki rétt frá staðreyndum.

Þetta
þýðir að ráðherrar í ríkisstjórninni fá meiri skattalækkun en sá sem varla eða
ekki nær endum saman. Dásamlegt er þeirra réttlæti.


er ég ekki að setja út á þeir sem eru með yfir 325.000 kr. á mánuði fái fína
skattalækkun. Bara að benda á þá staðreynd, að bæði forsætisráðherra og
fjármálaráðherra greina ekki rétt frá staðreyndum. Það er EKKI verið að skila „meiri
lækkun til tekjulægstu hópanna en þeirra tekjuhærri“! Ef einhver ætlar að benda
á að þetta sé hærri prósenta, þá veit ég ekki um neinn sem greiðir fyrir
nauðþurftar með prósentum.

Auðvelt
er að lagfæra þetta með því að lækka skatthlutfall lægsta þrepsins annars vegar
og hins vegar hækka skatthlutfall hinna tveggja eða lækka persónuafsláttinn enn
meira. Það getur ekki falist neitt réttlæti í því, að fólk með margar milljónir
í mánaðarlaun fái meiri skattalækkun en fólk með á bilinu 171.603 - 240.000 kr.
í tekjur. (Sá sem er með 171.603 kr. í dag greiðir 6.943 kr. í skatt, en það er
sama upphæð og skattar hátekjufólksins eiga að lækka um.)

Þessi frétt Fjárlögin: Ráðherrar fái meiri skattalækkun en fátækir birtist fyrst á miðjan.is.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 6226