
Kanarnir spila á hégóma íslenskra „fyrirmenna“ og fara létt með.

Íslensk „fyrirmenni“*
eru að tapa sér. Til að slá sem mest um sig bjóða þau hingað bandarísku „fyrirmenni“.
Þetta er eins kolruglað og hægt er að hafa það. Reynt er að strá ryki í augu
fólks og tala einatt um að skrípaheimsóknin snúi um varnarmál. Varnarmál.
Trúir nokkur því,
eitt einasta augnablik, að Kanarnir hafi vilja eða hug til að verja Ísland? Og
þá fyrir hverjum? Nei, þeir vilja koma sér fyrir á Íslandi til að geta sótt ef
þarf og til að verja eigin hag og eigið land. Ekki Ísland, ekki eitt augnablik.
Kanarnir spila á
hégóma íslenskra „fyrirmenna“ og fara létt með. Ef nauðsyn var á að taka á móti
varaforsetanum því var ekki nóg að Gulli og önnur „fyrirmenni“ hittu hann á
Keflavíkurflugvelli? Því að loka stórum hluta Reykjavíkur og Kanaveginum vegna
þess leikþáttar.
Flestir landsmanna undrast
þessi tilgangslausa sýndarmennska. Guðlaugur Þór og þau hin eru sér til
athlægis. Enn dregur úr virðingu almennings til stjórnmálafólks.
*Fyrirmenni er orð sem Davíð Oddsson notar um sig og sér líka.
Þessi frétt „Fyrirmenni“ fáránleikans birtist fyrst á miðjan.is.