Quantcast
Viewing all articles
Browse latest Browse all 6228

Jarðakaup: „Hvað veldur seinagangi í stjórnkerfinu?“

Image may be NSFW.
Clik here to view.

Image may be NSFW.
Clik here to view.

Image may be NSFW.
Clik here to view.

Er „ kerfið“ að þráast við? Eða er um að kenna sofandahætti ráðherra?

Styrmir Gunnarsson skrifar fína úttekt á síðu sína, styrmir.is.

„Það er fróðlegt að lesa ummæli Bjarna
Benediktssonar og Katrínar Jakobsdóttir um jarðakaup útlendinga í Morgunblaðinu
í dag. Bjarni segir að innan núverandi laga- og regluverks:

„...sé hægt að gera ráðstafanir.“

Þá vaknar spurningin: Hvers vegna hefur það ekki
verið gert?

Í frétt blaðsins er haft eftir Katrínu:

„...að reglur um þessi mál hafi verið mun opnari á
Íslandi en víða annars staðar innan EES-svæðisins.“

Og enn má spyrja: Hvers vegna?

Gagnrýni á stöðu þessara mála hefur komið upp aftur og aftur síðustu ár. Hvað veldur ofangreindu? Er „ kerfið“ að þráast við? Eða er um að kenna sofandahætti ráðherra?

Bjarni talar um að málið verði lagt fyrir þingið „ næsta vetur “ , sem er það sama og Katrín hefur sagt.

Sigurður Ingi Jóhannsson talar hins vegar um
haustið.

Ráðherrarnir verða að tala skýrar.

Nú verður eitthvað að gerast.“

Þessi frétt Jarðakaup: „Hvað veldur seinagangi í stjórnkerfinu?“ birtist fyrst á miðjan.is.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 6228