Quantcast
Channel: Greinar – miðjan.is
Viewing all articles
Browse latest Browse all 6232

Fráleitt að láta gróðapungum og bröskurum eftir að móta húsnæðisstefnuna

$
0
0

Gunnar Smári skrifar:

Gunnar Smári.

Á þetta hafa sósíalistar bent í nokkur ár; til að leysa
húsnæðiskreppu láglaunafólks, öryrkja, eftirlaunafólk og ungra barnafjölskyldna
í basli ber að byggja yfir þetta fólk. Það er fráleitt að láta gróðapungum og
bröskurum eftir að móta húsnæðisstefnuna, reyna að beina henni þangað sem
mestur gróðinn er; ekki bara vegna þess að það er siðferðislega rangt heldur
vegna þess að það er víðáttuvitlaust. Braskarar hafa rangt fyrir sér og það
hefur komið í ljós á 7-10 ára fresti alla tíð
kapítalismans þegar kreppur skella á og kostnaðurinn af heimsku braskaranna
leggst á almenning allan. Þrátt fyrir afleita niðurstöðu húsnæðisstefnunnar
heldur meirihlutinn í Reykjavík áfram að semja við lóðabraskara, verktaka og
leigufyrirtæki um áframhaldandi stjórn húsnæðisuppbyggingarinnar í Reykjavík,
sömu aðila og eru meginástæðan fyrir húsnæðiskreppunni.

Hvað eru bankarnir að biðja um?

Neðst í fréttinni kvartar svo bankamaður undan að þurfa að borga
skatta, segir að 10 milljarðar króna bankaskattur valdi því að bankarnir geti
ekki lækkað vexti. Í fyrra voru stóru bankarnir þrír reknir með 37,7 milljarða
króna hagnaði þrátt fyrir bankaskattinn. Hvað eru bankarnir að biðja um? Að
draga meira en 1,3% af landsframleiðslu til sín sem hreinan hagnað? Eru
bankamenn virkilega að fara fram á meira?

Þessi frétt Fráleitt að láta gróðapungum og bröskurum eftir að móta húsnæðisstefnuna birtist fyrst á miðjan.is.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 6232