


Sigurjón Þórðarson skrifar:

Fyrir hvern er ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur að vinna og meirihluti Alþingis?
Það skín í gegn í þessu makrílmáli þar sem nokkrum auðmönnum er úthlutað einokunarréttur til að nýta makrílinn og fá að auki milljarða í bætur ef að líkum lætur. Það blasir við að það hefði vel verið hægt að koma á móts við dóminn með öðrum hætti t.d. að fara leið Færeyinga.
Sömuleiðis hefði ríkisstjórnin átt að fara fram á endurupptöku málsins þar sem Árni Kolbeinsson var augljóslega vanhæfur til að dæma í málinu með sama hætti og hann var í Al Thani málinu.
Svarið við spurningunni hér að ofan er augljóst þ.e. ríkisstjórn undir forystu Vg er fyrst og fremst að þjóna auðmönnum.
Þessi frétt Fyrir hvern vinnur ríkisstjórn Katrínar? birtist fyrst á miðjan.is.